Þyngdarstjórnunarlyf eins og Wegovy og Ozempic eru seld á svörtum markaði hér á landi en ógerningur er að segja til um uppruna þeirra. Efni sem er sagt öflugt ósamþykkt tilraunalyf er selt víða á samfélagsmiðlum. Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir það grafalvarlegt að fólk sprauti sig með óþekktum efnum. FLEIRI VILJA ÞYNGDARSTJÓRNUNARLYF EN FÁ ÞAU UPPÁSKRIFUÐ Sífellt fleiri fá uppáskrifuð þyngdarstjórnunarlyf hér á landi en um fimm prósent þjóðarinnar, tæplega 17 þúsund manns eru á slíkum lyfjum, flestir á Wegovy. En fleiri vilja lyfin en fá þau uppáskrifuð og þar sem eftirspurn er til staðar skapast framboð.Á forritum eins og Telegram og Signal eru lyf eins og Wegovy og Ozempic auglýst með ávanabindandi lyfjum og ólöglegum fíkniefnum. Oft er sérstaklega tekið fra