Vel gekk að flytja farþega á hollenska skemmtiferðaskipinu Hondiusi til síns heima í dag, að sögn faraldursfræðings hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni, WHO. Allir eru ánægðir með hve allt hefur farið snurðulaust fram en sérstaklega farþegarnir og áhöfnin. EKKERT KOMIÐ UPP Á VIÐ FLUTNINGANA Boris Pavlin, faraldursfræðingur hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, er á Tenerife að fylgjast með flutningum farþeganna. Fréttastofa náði tali af honum þegar hann var niðri á höfn í Granadilla de Abona á suðausturhluta eyjunnar, þar sem Hondius liggur rétt undan ströndu.Flutningarnir hófust um klukkan sjö í morgun. „Þeir hafa gengið alveg snurðulaust. Spænsk heilbrigðisyfirvöld hafa tekið mjög nákvæmlega á hverju atriði við brottflutning farþega og áhafnar. Þeir skipuðu í litla báta samkvæmt þjóð