Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Þessi ofurheiti jarðvarmi er þarna, þetta er bara verkfræðileg áskorun“

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, segir að samstarf um framkvæmd þriðju djúpnýtingarholu Iceland Deep Drilling Project sé ekki aðeins mikilvægt fyrir íslenska hagsmuni heldur hafi það mögulega þýðingu fyrir orkuskiptin á heimsvísu.„Þetta er verkefni sem má í raun rekja allt aftur til aldamóta. En nú eru mjög spennandi skref framundan. Þetta snýst í grunninn um það að bora niður í jörðina, bora dýpra heldur en tíðkast hefur, til þess að beisla ofurheitan jarðvarma og vinna raforku úr honum. Þá er í raun veðmálið að með þessu sé hægt að skila margfalt meiri orkugetu úr hverri holu heldur en gengur og gerist í svona týpískri háhitanýtingu,“ segir Jóhann Páll í viðtali við fréttastofu.Ráðherrann, Orkuveitan, Landsvirkjun og HS Orka undirrituðu í gær samstarfssamning
„Þessi ofurheiti jarðvarmi er þarna, þetta er bara verkfræðileg áskorun“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta