Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir verð á eldsneyti hafa haldist óbreytt frá 1. maí en að tilefni sé til þess á næstu dögum að lækka það í kjölfar lækkunar á heimsmarkaði.Virðisaukaskattur á eldsneyti úr dælu var lækkaður úr 24% í 11% prósent 1. maí, til að bregðast við áhrifum átaka í Mið-Austurlöndum á olíuverð. Lækkunin gildir til 31 ágúst.Runólfur segir olíuverð vera í ólgusjó vegna ástandsins í Íran en að verð á hráolíu og afleiddum afurðum bensín- og dísilolíu hafi lækkað allhressilega á heimsmarkaði frá lokum marsmánaðar.„Við bindum vonir við að það gæti farið að skila sér í einhverri lækkun til viðbótar hér á landi. En það er ekki útséð að það sé að skila sér strax. En hvernig sem það fer þá er allavega tilefni til þess á næstu dögum að lækka verð frekar á eldsneyti að