Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hildur fékk upplýsingar um kortanotkun borgarstjóra í janúar

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, óskaði eftir og fékk afhent gögn um notkun borgarstjóra á innkaupakorti frá borginni í janúar. Kortanotkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra hefur verið mikið til umfjöllunar vikunni. Hildur óskaði eftir færsluyfirliti af innkaupakorti borgarstjóra allt þetta kjörtímabil í byrjun árs.„Þessi orðrómur um kortanotkunina hefur verið á kreiki í marga mánuði og barst mér fyrst til eyrna innan úr Samfylkingunni í miðju prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Mér fannst óábyrgt annað en að kalla eftir færsluyfirlitum og mér bárust þau í lok janúar,“ segir Hildur.„Það voru alls ekki jafn ítarleg gögn og við höfum verið að sjá síðustu daga. Þar voru engar upplýsingar um að gerðar hafi verið athugasemdir við færsl
Hildur fékk upplýsingar um kortanotkun borgarstjóra í janúar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta