Hér fer fram bein textalýsing frá El Clasico. Barcelona á móti Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni. Börsungar geta með jafntefli eða sigri tryggt sér spænska meistaratitilinn. Það væri þá í fyrsta sinn í sögu El Clasico sem baráttan um meistaratitillinn myndi ráðast í viðureign þessara liða. Flautað verður til leiks á Nývangi klukkan sjö.