Hjólreiðamennirnir og perluvinirnir Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson vinna nú mikið þrek en þeir eru um þessar mundir í heljarinnar hjólaferð um vesturströnd Bandaríkjanna, frá Seattle til Arizona. Þetta er gert til styrktar Parkinsonsamtökunum. Einar er sjálfur með parkinson en lætur það ekki stöðva sig.