Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandarískir farþegar Hondius fara ekki endilega í sóttkví

Bandaríkjamenn sem voru um borð í hollenska farþegaskipinu Hondius verða ekki endilega settir í sóttkví, segir Jay Bhattacharya, starfandi yfirmaður sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna CDC. Hantaveira greindist um borð í skipinu og þrír létust skömmu eftir að skipið fór frá höfn í Argentínu í apríl.Hondius kom að Tenerife í morgun og flutningar farþega frá borði hafa staðið í allan dag. 150 voru um borð og eru allir sagðir einkennalausir. Mörg ríki hafa sagt að ríkisborgarar þeirra fari í sóttkví eða einangrun þegar heim er komið. Fjórtán Spánverjar, sem voru þeir fyrstu sem fóru frá borði í morgun, eru til að mynda þegar komnir í einangrun á hersjúkrahúsi í Madríd.Þetta á hins vegar ekki endilega við um sautján Bandaríkjamenn voru um borð.Bhattacharya brýndi fyrir bandarísku þjóðinni að vera
Bandarískir farþegar Hondius fara ekki endilega í sóttkví

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta