Hér fer fram bein textalýsing frá mikilvægum leik West Ham og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Arsenal háir harða baráttu við Manchester City um Englandsmeistaratitilinn og er með örlögin í sínum höndum en West Ham reynir að bjarga sæti sínu í deildinni. Flautað verður til leiks á London leikvanginum klukkan hálf fjögur. Leikurinn er sýndur á Sýn Sport.