Nýverið bárust fréttir af fyrirhugaðri 30 milljarða uppbyggingu AtNorth á Akureyri, fyrirtækið GIGA-42 ræðir við Landsvirkjun og Landsnet um uppbyggingu gagnavers á Bakka við Húsavík og í gær voru auglýst 11 ný störf í tengslum við gagnaver og uppbyggingu Borealis á Blönduósi.Samkvæmt Hjálmari Boga Hafliðasyni, forseta sveitarstjórnar í Norðurþingi, er vilyrði frá sveitarfélaginu að GIGA42 geti byggt upp sitt gagnaver á Bakka, nái þeir samningum við orkufyrirtæki um raforku. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri segir mikinn áhuga á að koma með fleiri gagnaver í bæinn:„Það eru náttúrlega mjög margir sem hafa sýnt því áhuga á að koma hingað, það liggur alveg fyrir. Það er bara þannig umhverfi sem hentar gagnaverum hér í bænum. Það er öll þjónusta til staðar og fyrirtæki sem geta hu