Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tæplega fjórar milljónir króna kostar að hreinsa pípuorgel Hveragerðiskirkju

Um 3,8 milljónir króna kostar að láta hreinsa pípuorgelið í Hveragerðiskirkju og því hefur verið brugðið á það ráð að safna fyrir upphæðinni með fjölbreyttum styrktartónleikum.Pípuorgelið, sem um ræðir er að verða fimmtíu ára og því mikil þörf á hreinsun orgelsins en það verk er heilmikið og kostar mikið en svona hreinsun þarf að fara fram á 20 ára fresti.Anna Jórunn Stefánsdóttir, sem býr í Hveragerði, hefur haldið utan um styrktartónleikaröð í kirkjunni til að safna fyrir hreinsuninni en fjöldi tónlistarmanna, sem tengjast Hveragerði á einhvern hátt leggur lóð sitt á vogarskálarnar.„Þetta er ekkert smá, það þarf að taka það allt í sundur, það þarf að taka það alveg í nefið og hreinsa. Það er svo rykugt og eins og við vitum, allt, sem gengur fyrir rafmagni, það sogar til sín rykið. Þetta
Tæplega fjórar milljónir króna kostar að hreinsa pípuorgel Hveragerðiskirkju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta