Í sínu nýjasta ritverki deilir Gyrðir Elíasson með lesendum erfiðri lífsreynslu og dregur ekkert undan. Bókin nefnist Ótíð í víti: Lífsreynslusaga og fjallar um baráttu hans við þunglyndi, kvíða og geðsjúkdóm.„Hann lýsir því að hann ólst upp sem mikill kvíðasjúklingur og hefur glímt við mikið þunglyndi,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi Kiljunnar.„Það sem gerist á covid-tímanum er að hann fer í sprautu, fær hjartsláttartruflanir og fer á lyf. Það er komið árið 2022 og á hálfu ári reynir hann tvisvar að svipta sig lífi.“Hún segir frásagnir Gyrðis af sjálfsvígstilraunum sínum vera þannig að „maður er algjörlega sleginn.“„Það er eiginlega þannig að þegar maður er búinn að lesa þessa bók þá setur mann eiginlega hljóðan. Þetta er gríðarlega áhrifamikil og merkileg bók. Hann lýsir líðan