Íbúar í Árborg mega gera ráð fyrir því að álögur lækki á næsta kjörtímabili, en allir oddvitar þeirra framboða sem bjóða fram í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi telja svigrúm til lækkunar eftir að ráðist var í sársaukafullar aðhaldsaðgerðir og töluverða hækkun gjalda á yfirstandandi kjörtímabili, til að greiða niður skuldir.