Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Í dag ræðir hann þróun læsis á Íslandi, tímasetningar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna, úrbætur í húsnæðismálum og starfsemi Landeyjahafnar.