Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Myndi aldrei senda barnið mitt í heimavist“

„Þjóðfélagið var búið að gera sér grein fyrir því að það er mikilvægt að börn læri, líkamlegum þörfum þeirra þarf að vera sinnt en það var takmarkaður skilningur á þessum tilfinningalegu þörfum,“ segir Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur.Rætt er við hann í þáttunum Börnin á vistinni á Rás 1, í umsjón Þórgunnar Oddsdóttur, sem fjalla um þann tíma þegar börn til sveita þurftu að fara ung að heiman til að stunda grunnskólanám.Guðbrandur segir að ef börn sem ekki eru komin á gelgjuskeið eiga að vera í heimavist þurfi að huga sérstaklega vel að tilfinningalegum þörfum þeirra. Á þessum tíma hafi verið lítill skilningur á kvíða.„Hugarfarið var það að það sama skyldi yfir alla ganga. Núna erum við orðin miklu meðvitaðri um það að reyna að sinna einstaklingsþörfum barna.“Svona var bara lífiðSíðustu
„Myndi aldrei senda barnið mitt í heimavist“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta