Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fyrsti hópur fólks farinn frá borði

Hondius liggur við akkeri út fyrir höfnina í Grandilla á Tenerife. Farþegum og hluta áhafnarinnar um borð verður skipt upp í hópa eftir þjóðernum.Hollenski sendiherrann á Spáni, Roel Nieuwenkamp, sagði í viðtali við fjölmiðla að enginn um borð væri með einkenni hantaveirusmits. Það væri það mikilvægasta. Þá væri andrúmsloftið um borð gott en fólk væri spennt að komast heim til sín.Spánverjar fóru fyrstir frá borði og fljúga áfram til Madrídar í dag þar sem þeirra bíður einangrun á Gomez Ulla-herspítalanum. Bretland, Bandaríkin og fjölmörg Evrópuríki hafa sent flugvélar til Tenerife til að sækja ríkisborgara sína og flytja þá til heimalanda sinna.Ekki fá þó allir að snúa aftur heim alveg strax. Um þrjátíu manns úr áhöfninni verða áfram um borð og sigla skipinu til heimahafnar í Hollandi.
Fyrsti hópur fólks farinn frá borði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta