Viðskiptaþvinganir Vesturlanda á Rússa og Írana og stríðsátök við Svartahaf og í Mið-Austurlöndum eru sögð helsta ástæða þess að þjóðirnar nýti sér siglingaleið í Kaspíahaf í auknum mæli nú en áður. Þetta kemur fram í umfjöllun The New York Times.Rússar eru sagðir flytja drónaíhluti til Írana um Kaspíahaf sem gerir þeim kleift að byggja upp vopnabirgðir sínar á ný eftir að hafa tapað um 60% drónahergagna sinna frá upphafi stríðsins í Mið-Austurlöndum, samkvæmt ónefndum heimildarmönnum The New York Times. SKIP SLÖKKVA ÍTREKAÐ Á STAÐSETNINGARBÚNAÐI Það er ekki með öllu ljóst hvers kyns varningur og í hvaða magni er fluttur með skipum um Kaspíahaf. Um tvær milljónir tonna af hveiti sem áður voru flutt um Svartahaf eru nú flutt um Kaspíahaf vegna reglulegra árása milli Rússa og Úkraínumanna