Athygli heimsbyggðarinnar var á Venesúela í byrjun árs þegar bandarískir hermenn tóku forseta landsins, Nicolás Maduro og eiginkonu hans Ciliu Flores, höndum og fluttu í fangelsi í New York þar sem þeim er enn haldið.Trump lýsti því yfir að boðað yrði til kosninga og að Bandaríkin tækju yfir olíuframleiðslu landsins. Þrátt fyrir að vera risastórt fréttamál féll það fljótlega í skuggann af öðru, eins og hótunum Trumps um að taka yfir Grænland, árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran og árásum Ísraels á Líbanon, svo fátt eitt sé nefnt.Maduro hafði verið við völd í tæp 13 ár þegar hann var handtekinn 3. janúar. Hann stjórnaði með harðri hendi; pólitískir andstæðingar voru handteknir, stór hluti almennings á vart til hnífs og skeiðar og síðasta áratug hefur fjórði hver landsmaður flúið land. Fl