Í dag er von á súld og rigningu víðast hvar en þurru veðri á austanverðu landinu fram á kvöld. Hiti nái frá 3 til 8 stigum, samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands.Á morgun má búast við suðvestanátt upp á 5 til 13 metra og dálítilli vætu í flestum landshlutum. Skýjað verði með köflum síðdegis og styttir upp að mestu. Þrátt fyrir vætu má vænta hærri hita en spá gerir ráð fyrir að hann verði á bilinu 6 til 12 stig.