Megináherslur sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík eru í stuttu máli fjórar. Það eru húsnæðismál, leikskólar, fjármál og svo samgöngumál. Helsta bitbeinið virðist vera ólíkar útfærslur á samgöngusáttmálanum en Miðflokkurinn er sá eini sem hefur lofað að beinlínis endurskoða sáttmálann. Þannig hafnar Miðflokkurinn Borgarlínu en er á sama tíma fylgjandi ýmsum framkvæmdum sem eru innan sáttmálans, svo sem framkvæmdum við Miklubraut og Sæbraut....