Varakanslari Þýskalands og fjármálaráðherra Lars Klingbeil.EPA / CLEMENS BILANStjórnvöld í Kanada og Þýskalandi ætla að auka samstarf milli þjóðanna. Þetta tilkynnti varakanslari Þýskalands og fjármálaráðherra Lars Klingbeil eftir fund sinn með forsætisráðherra Kanada Mark Carney í Toronto í Kanada í gær.Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá. Klingbeil sagði að samstarfið verði á sviði gervigreindar, orkumála, mikilvægra hráefna og verkefna á sviði varnarmála. Varakanslarinn hefur einnig lagt til að Kanadamenn kaupi kafbáta af Þjóðverjum.