Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Segir litlar líkur á að íbúar Tenerife smitist af hantaveiru

Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), kom til Tenerife í gær til að aðstoða og hafa umsjón með brottflutningi farþega úr hollenska skemmtiferðaskipinu Hondiusi.Von er á skipinu til Tenerife innan nokkurra klukkustunda. Ghebreyesus hélt blaðamannafund á Tenerife og á fundinum lagði hann áherslu á að hantaveiran væri ekki sambærileg við Covid-19. Hann sagði líkurnar á því að íbúar Tenerife gætu smitast vera mjög litlar vegna eðlis veirunnar en líka vegna þess að spænsk yfirvöld hefðu unnið vel allan undirbúning fyrir komu skipsins til að fyrirbyggja öll vandamál.Hondius fær ekki að leggjast að bryggju á Tenerife. Breska ríkisútvarpið BBC segir að farþegum og hluta áhafnarinnar um borð verði skipt upp í hópa eftir þjóðernum og flutt í hópum á
Segir litlar líkur á að íbúar Tenerife smitist af hantaveiru

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta