Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Brot á vopnahléi Rússa og Úkraínumanna

Rússar og Úkraínumenn saka hvor annan um brot á þriggja daga vopnahléi sem samið hafði verið um. Alls hefur verið tilkynnt um 51 árás Rússa í Úkraínu og þá segja Rússar að Úkraína hafi gert drónaárásir og stórskotaliðsárás. Tveir voru drepnir og þrír særðust í árás rússneska hersins á Zaporizhzhia og Dnipropetrovsk í Úkraínu. Þá eru þrír særðir eftir árás úkraínska hersins í Belgorod-héraði í Rússlandi.Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði á hátíðarhöldunum í Moskvu í gær að átökin væru að líða undir lok en gagnrýndi harðlega stuðning Vesturlanda við Úkraínu. Í ávarpi sínu sagði hann að Rússar væru að berjast við árásargjarnt afl í Úkraínu sem nyti stuðnings NATO. Hann lýsti hernaðarlegum markmiðum sínum sem réttlátum.Pútín segir að hann sé tilbúinn að hitta Volodomyr Zelensky Úkraínuforse
Brot á vopnahléi Rússa og Úkraínumanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta