Varnarmál og samstarf Bandaríkjanna og Katar voru meðal þess sem Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna og forsætisráðherra og utanríkisráðherra Katar, Sheikh Mohammed bin Abdulrahman Al Thani, ræddu um á fundi þeirra í Katar í dag.Ráðherrarnir ræddu stuðning Bandaríkjanna í varnarmálum Katar og um mikilvægi þess að viðhalda nánu samstarfi til að stuðla að stöðugleika og öryggi um öll Mið-Austurlönd. Katarar hafa verið milliliður í deilunni milli Írana og Bandaríkjamanna og fundað reglulega með háttsettum leiðtogum beggja þjóða.Íranski byltingarvörðurinn hefur hótað því að ráðast á bandarísk yfirráðasvæði í Mið-Austurlöndum og óvinaskip ef tankskip Írana verði fyrir árásum Bandaríkjahers. Öllum árásum á írönsk tankskip og flutningaskip verði svarað með hörðum árásum. Þessi yfirlýsing