46 manns eru í gæsluvarðhaldi í París í tengslum við ólögleg mótmæli hægri-öfga- og andfasistahópa í dag. Alls voru 97 handtekin á nokkrum svæðum í borginni í tengslum við mótmælin.Fréttaveitan AFP hefur þetta eftir lögreglunni í París.Samkvæmt lögreglunni var fólkið handtekið fyrir að hópa sig saman í þeim tilgangi að beita ofbeldi og valda eignatjóni, fyrir hópslagsmál og fyrir að bera ólögleg vopn.Lögreglan hefur bannað mótmæli á vegum hægri-öfgahópsins sem er kallar sig Comité du 9-Mai (C9M) eða 9. maí-nefndin. Hópurinn hefur mótmælt árlega til að minnast hægriöfgamanns sem lést árið 1994 þegar hann féll af húsþaki á flótta frá lögreglu. NÆR 200 SEKTAÐIR FYRIR AÐ BRJÓTA GEGN BANNINU Þá bannaði lögreglan einnig gagn-mótmæli andfasista undir yfirskriftinni „Enga nasista í París“ sem á