Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Brúður og leikarar af holdi og blóði í umfangsmikilli flugslysaæfingu á Akureyri

Einhverjum Akureyringum hefur eflaust brugðið þegar að allt tiltækt lið viðbragðsaðila á svæðinu þaut með hraði inn á Akureyrarflugvöll um miðjan dag. Þar fór fram umfangsmikil flugslysaæfing á vegum Isavia.Undirbúningur fyrir flugslysaæfinguna hefur tekið langan tíma og mikinn mannafla alla vikuna enda markmiðið að hafa æfinguna sem líkasta raunveruleikanum. Bílar voru notaðir sem brak úr flugvélinni, rúta sem hluti af skrokki vélarinnar með farþegum innanborðs og bæði brúður og leikarar af holdi og blóði voru í hlutverki þeirra sem lentu í slysinu.Æfingin var fjölþætt og komu margir að henni. Bæði tók mikinn tíma að undirbúa hana og setja upp en einnig að leysa hana. Að því komu: slökkvilið, lögregla, björgunarsveitir, heilbrigðisstarfsfólk og fleiri.
Brúður og leikarar af holdi og blóði í umfangsmikilli flugslysaæfingu á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta