Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Framsókn Rússa virðist hafa stöðvast og vorsókn mistekist algjörlega

Úkraínumenn náðu aftur á sitt vald landi af Rússum í Úkraínu í apríl. Hernaðarsagnfræðingur segir svo virðast sem framsókn Rússa hafi stöðvast alveg og að vorsókn þeirra virðist hafa algjörlega mistekist. ÞVERRANDI SÓKNARÞREK RÚSSA OG AUKIN DRÓNAGETA ÚKRAÍNUHERS 1535 dagar eru síðan Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu. Hugveitan The Institute for the Study of War birti samantekt í upphafi mánaðar þar sem kemur fram að Úkraínumenn hafi náð aftur 116 ferkílómetrum lands af Rússum í apríl. Það jafngildir landsvæði sem er aðeins stærra en Kópavogur.Þetta er í fyrsta skipti síðan í ágúst 2024 sem Rússar tapa landsvæði í Úkraínu, þegar Úkraínumenn hófu innrás í Kúrsk-hérað á landamærum Úkraínu og Rússlands. Framrás Rússa á vígvellinum hefur minnkað stöðugt frá því í nóvember í fyrra.Erling
Framsókn Rússa virðist hafa stöðvast og vorsókn mistekist algjörlega

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta