Maður á þrítugsaldri lést af sárum sínum eftir að ráðist var á hann með eggvopni í Kristianstad í Svíþjóð í dag. Að sögn lögreglunnar í Kristanstad lenti maðurinn í átökum þar sem hann særðist og var þá fluttur á bráðamóttöku af aðstandendum. Neyðarlokun var svo komið á á bráðamóttökunni.Þetta kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins SVT.„Við köllum þetta innilokun. Enn er opið fyrir sjúklinga, en lögreglumenn og öryggisverðir eru á staðnum á bráðamóttökunni,“ er haft eftir Tomas Nilsson, hjá upplýsingadeild Region Skåne, í frétt SVT.Samkvæmt upplýsingafulltrúa lögreglunnar varð mikið uppnám á bráðamóttökunni þegar maðurinn var fluttur þangað. Lögreglan og öryggisverðir hafi þurft að „leysa úr málum og koma ró á ástandið“. „ÞAÐ VORU MJÖG MIKIL ÖSKUR“ Lögreglan tilkynnti að maðurinn vær