Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óttast að næturvinna geri rúmrusk

Heilbrigðiseftirlitið gerir athugasemdir við framkvæmdir við Fossvogsbrú á nóttunni. Staðarstjóri Ístaks segir eftirlitið ekki hafa tekið tillit til hljóðvistarmælinga sem gerðar eru reglulega.Brúin Alda er hluti af Borgarlínunni og er ætluð borgarlínuvögnum, strætisvögnum, gangandi og hjólandi vegfarendum auk forgangsaksturs lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs. Hún verður 270 metra löng og 17 metra breið og tengir saman vesturhluta Kópavogs og Reykjavíkur.Nú hafa framkvæmdaraðilar óskað eftir leyfi til að fá að vinna á nóttunni. Kranarnir sem þeir nota til að koma fyrir brúarstólpunum eru svo háir að þeir geta truflað flugumferð á daginn.Ístak hefur fengið tímabundna undanþágu til að reisa Fossvogsbrú á nóttunni. Það er gert til að trufla ekki flugumferð á daginn. Heilbrigðiseftirlit
Óttast að næturvinna geri rúmrusk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta