Eins og lesendum Morgunblaðsins ætti að vera orðið kunnugt hefur Njörður S. Jóhannsson, hagleiksmaður á Siglufirði, fengist við það á síðustu árum í frístundum að gera líkön af sögufrægum norðlenskum fiski- og hákarlaskipum, þar sem tomman er fetið, þ.e.a.s. í hlutföllunum 1 á móti 12.