Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Norðmenn ætla að auka olíuframleiðslu

Terje Aasland, olíu- og orkumálaráðherra Noregs, tilkynnti í vikunni að svæði undan suðurströnd landsins verði tekin í notkun árið 2028, eftir þriggja áratuga hlé. Þetta er gert til að bregðast við skortinum sem bæði stríðið í Úkraínu og staðan í Hormússundi hafa valdið.Ákvörðunin á að tryggja það að jarðgas- og olíuframleiðsla verði á pari við þá sem var í fyrra, og haldist stöðug út þennan áratug.Noregur á 97 olíulindir í hafi og stefnt er að því að þær verði orðnar fleiri en 100 á næstu tveimur árum.Ráðherrann segir að olíuframleiðsla Noregs gegni mikilvægu hlutverki, til að tryggja orkuöryggi í Evrópu. Því sé nauðsynlegt að halda framleiðslu og olíuleit áfram.
Norðmenn ætla að auka olíuframleiðslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta