Hallfríður Helga Arnórsdóttir úr félagsmiðstöðinni Þróttheimum sigraði í Söngkeppni Samfés sem fór fram í Laugardalshöll í dag. Hallfríður Helga flutti lagið All by myself.Í ár komust 25 söngatriði í lokakeppnina í Laugardalshöll eftir að hafa tekið þátt í undankeppnum í öllum landshlutum.Í öðru sæti lentu Þórdís Anna Freysteinsdóttir og Steingrímur Ari Helgason úr félagsmiðstöðinni Tvistinum með lagið It's all Coming Back To Me Now og í þriðja sæti var Gunnlaugur Sturla Olsen úr félagsmiðstöðinni Fjörheimum með lagið Kókómjólk.Dómnefndina skipuðu þau Birgir Steinn Stefánsson, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson.Söngkeppni Samfés hefur verið haldin síðan árið 1999 í núverandi mynd og hefur keppnin verið afar mikilvægur vettvangur fyrir ungt tónlistarfólk. Þar fá ungmenni