Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Krakkarnir eru afgangsstærð í íþróttunum hér í Laugardalnum“

Borgarráð hefur samþykkt tillögur starfshópa til að bæta aðstöðu íþróttafélaganna Ármanns og Fjölnis í Reykjavík. Þá hefur umboð starfshópanna verið endurnýjað og munu þeir því rýna aðstöðumál íþróttafélaganna til framtíðar.Greint er frá þessu á vef Reykjavíkur.Íþróttastjóri Ármanns segir jákvætt að samtalið um aðstöðumálin muni halda áfram, en að betur megi ef duga skuli. Innanhússíþróttaaðstaða fyrir börn í Laugardalnum sé nær engin.„Það halda allir að Laugardalurinn sé Mekka íþróttanna á Íslandi og hann er það vissulega fyrir afreksíþróttir. En fyrir börnin í Laugardal er Laugardalurinn ekki neitt Mekka. Krakkarnir eru afgangsstærð í íþróttunum hér í Laugardalnum. Við lendum alltaf undir,“ segir Eiður Ottó Bjarnason, íþróttastjóri Ármanns.Hreyfing sé komið á málin þó ekki hafi komist le
„Krakkarnir eru afgangsstærð í íþróttunum hér í Laugardalnum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta