Hér fer fram bein útsending frá leik þrjú í úrslitaeinvígi Olís deildar kvenna í handbolta. Valur á móti ÍBV. Valskonur geta með sigri í dag tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Þær eru 2-0 yfir fyrir leik dagsins. Flautað verður til leiks í N1-höllinni að Hlíðarenda klukkan fimm.