„Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið.“ Þannig hljómaði fyrirsögn greinar á Vísi fyrr í vikunni. Þar rakti karlmaður sögu sína af atvinnuleysi, greindi frá menntun og atvinnureynslu og því að eftir að störfum lauk á síðasta vinnustað hefði hann sótt um 50 störf, fengið þrjú viðtöl en ekkert hefði leitt til ráðningar. Hann velti fyrir sér hvort aldur væri aðalástæðan – jafnvel þótt enginn hefði sagt það við hann berum orðum.Gögn Hagstofunnar sýna að árið 2025 var atvinnuþátttaka 16–74 ára 81,4%. Mest var atvinnuleysið hjá yngsta hópnum en minnst hjá 55–74 ára, ekki nema eitt og hálft prósent. Það gæti virst slá á grunsemdir um vanda eldra fólks en það gerir það ekki endilega. Atvinnuleysi mælir fólk sem er án vinnu og í virkri atvinnuleit; það mælir e