Einn slasaðist þegar flugvél var ekið á hann á flugbraut í Denver í Colorado í Bandaríkjunum í dag. Samgönguráðherra Bandaríkjanna, Sean Duffy, segir einstaklinginn hafa brotið öryggisreglur flugvallarins með því að klifra yfir grindverk og hlaupa inn á flugbrautina.Tólf slösuðust við atvikið og fimm voru fluttir á sjúkrahús. Manneskjan sem hljóp inn á brautina sogaðist að minnsta kosti að hluta til inn í hreyfil vélarinnar, að því er bandaríski miðillinn ABC greinir frá. Upplýsingar um líðan hennar liggja ekki fyrir.Eldur kviknaði í hreyflinum, nokkur reykur myndaðist í farþegarýminu og hætt var við flugtak. Rúmlega 220 farþegar og sjö manna áhöfn, sem voru um borð, voru flutt af flugbrautinni með rútum.Vélin tilheyrir flugfélaginu Frontier, sem segist rannsaka atvikið í þaula, ásamt reks