Rússlandsforseti réttlætti innrásarstríð sitt í Úkraínu og fordæmdi NATO í hátíðarræðu í tilefni sigurdagsins, þegar Sovétríkin unnu sigur á nasistum í seinni heimsstyrjöldinni. Forsetar Rússlands og Úkraínu hafa samþykkt þriggja daga vopnahlé og að skiptast á stríðsföngum. LÁGSTEMMDARI HERSÝNING EN ÁÐUR Mikil hátíðarhöld eru alla jafna í Rússlandi á þessum degi en þau eru þó lágstemmdari í ár en áður. Ástæðan er ótti við drónaárásir Úkraínumanna sem hafa sótt fram að undanförnu.Stór hersýning fór fram við Rauða torgið í Moskvu en engin hergögn eða skriðdrekar voru til sýnis í ár, í fyrsta skipti í tæpa tvo áratugi. Til samanburðar voru 11 þúsund hermenn í sýningunni í fyrra og 200 hernaðarleg farartæki til sýnis.Þá mættu hátt í 30 erlendir þjóðarleiðtogar. Í ár voru aðeins þjóðarleiðto