„Í draumaheimi gætum við tekið vel á móti öllum sem hingað kæmu, tekið vel utan um þau og veitt þjónustu sem er. En við búum kannski ekki svo vel og erum þar af leiðandi í þessari stöðu.“Þetta sagði Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, í Vikulokunum fyrir hádegi.Meirihluti nefndarinnar hefur lagt til breytingartillögu við frumvarp dómsmálaráðherra um brottvísunarbúðir þess efnis að börn verði í aðstöðu fyrir fjölskyldur annars staðar.Hljóti frumvarpið samþykki verður lögreglu heimilt að frelsissvipta fólk sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi og vista í þar til gerðum búðum. FÓLK ÞEGAR LOKAÐ INNI Víðir bendir á að þegar vægari úrræði hafa verið fullnýtt sé fólk í dag vistað í gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði þangað til því er vísað úr landi. Þetta fólk hafi