Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segist hafa heyrt um notkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra á innkaupakorti borgarinnar á sama tíma og aðrir, í vikunni. Hann hafi litið málið alvarlegum augum.„Það er náttúrulega bara grundvallarkrafa að borgarbúar geti treyst því að það sé farið vel með skattfé og hverja einustu krónu af virðingu. Ég talaði við Heiðu og lagði áherslu á það sé mjög mikilvægt að leggja öll spilin á borðið og svara bara heiðarlega og hún hefur gert það núna,“ segir Pétur.„Hún segist fara eftir öllum reglum um innkaupakortið og hefur skýrt allar færslurnar. Bara fínar útskýringar og mér finnst hún hafa svarað vel fyrir þetta,“ segir hann. Þó hafi verið bagalegt að það vantaði kvittanir og önnur fylgiskjöl í einhverjum tilfellum. VIRÐIST NÝJU