Fimm eru særðir eftir að bíl var ekið á hóp fólks í breska bænum Arnold í Nottinghamskíri í nótt. Einn þeirra er í lífshættu. Lögregla leitar að ökumanninum sem yfirgaf vettvang og skildi bílinn eftir, að því er breska ríkisútvarpið greinir frá.Lögreglan segir ágreining hafa átt sér stað í aðdraganda atvikisins. Ekki væri litið á atvikið sem hryðjuverk og að almenningur væri ekki í hættu.Fréttin verður uppfærð.