Hollenska skemmtiferðaskipið Hondius er væntanlegt til Tenerife snemma í fyrramálið, segir Monica Garcia Gomez, heilbrigðisráðherra Spánar. Skipið hefur verið í kastljósi fjölmiðla um allan heim síðastliðna viku.Sex hantaveirusmit hafa verið staðfest af átta grunuðum frá því að veiran kom upp fyrir um viku. Þrír létust um borð eftir að skipið lagði úr höfn í Argentínu í apríl. Þrír voru fluttir frá borði undan Grænhöfðaeyjum á dögunum. Þeir eru á sjúkrahúsi samkvæmt fyrirtækinu Oceanwide, sem sér um rekstur skipsins.Enn eru um 150 manns um borð í skipinu, farþegar og áhöfn en fyrirtækið segir alla vera án einkenna.Stjórnvöld á Spáni heimiluðu skipinu að koma, þrátt fyrir óánægju stjórnvalda á Kanaríeyjum. Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðis-stofnuninnar segja almenningi stafa lítil hætta af ha