Ungur sænskur maður frá Umeå hefur verið ákærður fyrir fjölda alvarlegra brota. Brotin ná meðal annars til manndrápstilrauna og hvatningar til sjálfsvígs, en ungi maðurinn tengist 764-hópnum svokallaða.Hinn ákærði er aðeins 18 ára að aldri. Sænska ríkisútvarpið greinir frá.764-hópurinn herjar einkum á börn og ungmenni, fær þau á sitt vald og kúgar þau til ofbeldisverka. Hann teygir anga sína víða og til að mynda hingað til Íslands.Íslensk stúlka sem varð fyrir barðinu á 764-hópnum sagði frá reynslu sinni í Kastljósi í fyrra.Hópurinn er hluti af stærra neti sem kallað er The Community eða Samfélagið, sem hefur verið stytt sem The Com. Samfélagið kemur að ofbeldisglæpum og framleiðslu á ólöglegu efni sem er síðan dreift í lokuðum hópum. FJÖLDI ALVARLEGRA BROTA YFIR TVEGGJA ÁRA TÍMABIL Ung