CPKC-völlurinn í Kansas City í Missouri, heimavöllur Kansas City Current sem keppir í efstu deild kvenna í fótbolta í Bandaríkjunum, er fyrsta íþróttamannavirkið í heiminum sem er sérstaklega ætlað fyrir íþróttir kvenna. Annar völlur er í undirbúningi í Denver. Nýlega tilkynnti enska fótboltafélagið Brighton and Howe Albion að byggður yrði nýr fótboltaleikvangur sérstaklega ætlaður konum sem verði sá fyrsti sinnar tegundar í Evrópu.Margir eru farnir að sjá sér hag í að fjárfesta í kvennaíþróttum en áður en við förum nánar út í það er rétt að skoða aðdraganda fyrsta mannvirkisins, í Kansas City. TVÖ LIÐ HÆTTU REKSTRI Iðkun kvennafótbolta í Kansas hefur ekki alltaf verið dans á rósum. Árið 2012 var liðið FC KC eitt af stofnliðum kvennadeildarinnar í fótbolta. Það varð tvisvar bandarískur