Magyar og flokkur hans Tisza unnu stórsigur í þingkosningunum í Ungverjalandi 12. apríl og þar með lauk 16 ára valdatíð fráfarandi forsætisráðherra Viktors Orbans. Magyar lofaði kjósendum að uppræta spillingu og snúa við umdeildum breytingum sem Orban kom í gegn á dómskerfinu, fjölmiðlum, fræðasamfélaginu og víðar.Magyar hefur hvatt forseta Ungverjalands og aðra stuðningsmenn Orbans til að segja af sér. Búist er við miklum hátíðarhöldum bæði innan og utan þinghússins í Búdapest í dag og fánar, skreytingar og lagaval endurspegla virðingarvott við Evrópusambandið, samfélag Rómafólks og Ungverja sem búsettir eru erlendis.Andrea Virag, forstjóri Republikon Institute hugveitunnar, segir að Magyar vilji sýna að hann sé fulltrúi þjóðarinnar og vilji sætta þjóðina á ný eftir áralanga valdatíð Orba