„Lífið mitt er auðveldara núna eftir að hún dó. Það er það sorglega í þessu,“ segir Sigríður Inga Svavarsdóttir um andlát móður sinnar í október á síðasta ári. Móðir hennar veiktist alvarlega eftir að eiginmaður hennar lést skyndilega árið 2017. Næstu sjö árin glímdi hún við geðhvörf og fíknivanda, en Sigríður segir fjölskylduna ítrekað hafa reynt að koma henni inn í viðeigandi úrræði án þess að hún fengi nægilega snemmtæka eða samfellda aðstoð.