Von er á súld eða dálítilli rigningu á Suður- og Vesturlandi í dag, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Þá gerir Veðurstofa Íslands ráð fyrir fremur hægri vestlægri eða breytilegri átt.Á morgun er síðan að vænta suðlægrar áttar upp á 3-8 metra á sekúndu, súld og rigningu víða en heldur þurrt á austanverðu landinu fram undir kvöld. Hiti 3 til 8 stig.