Lögreglan var kölluð til á bráðamóttöku Landspítalans í gærkvöld eða í nótt vegna ölvaðs einstaklings sem var þar til vandræða. Honum var komið til síns heima en þar bjó hann sér til vopn með því að koma steinhellu fyrir í sokk og sveifla henni í átt að lögreglumönnum. Hann var því handtekinn og vistaður í fangaklefa.