Óskað var eftir aðstoð lögreglu á Bráðamóttöku í gærkvöld eða nótt vegna ölvaðs einstaklings sem var til vandræða, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Einstaklingurinn var færður heim til sín en þegar þangað var komið bjó hann sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk og sveifla í átt að lögreglumönnunum. Einstaklingurinn var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar er viðkomandi vistaður í fangaklefa þar til víman rennur af honum og hann verður viðræðuhæfur.Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu í verslunarmiðstöð vegna barna sem neituðu að yfirgefa verslunarmiðstöðina. Nokkrir voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn ökumaður var stöðvaður fyrir að hafa ekið bílum á 91 km/klst hraða í götu þar sem leyfilegur hámarkshraði er 40