Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rumen Radev settur í embætti forsætisráðherra

Búlgarska þingið samþykkti Rumen Radev sem nýjan forsætisráðherra Búlgaríu í gær. Radev var áður forseti Búlgaríu en sleit þingi í janúar og boðaði til kosninga sem fram fóru í apríl. Flokkabandalag hans, Progressive Bulgaria, tryggði sér 131 sæti af 240 þingsætum í kosningunum. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1997 sem flokkabandalag fær hreinan meirihluta í Búlgaríu.Vonir standa til að Radev nái að koma á stöðugleika í stjórnmálum í landinu, en átta þingkosningar hafa verið haldnar í Búlgaríu á síðustu fimm árum. Hans bíða fjölmörg aðkallandi verkefni líkt og að klára fjármálaáætlun Búlgaríu fyrir þetta ár, takast á við hækkandi verðbólgu og endurbæta lamað dómskerfi. Þá þarf að gera ýmsar umbætur, sérstaklega aðgerðir gegn spillingu, svo Búlgarar geti losað um 400 milljóna evra styrki úr sj
Rumen Radev settur í embætti forsætisráðherra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta