Stjórnvöld í Mexíkó íhuga að stytta skólaárið um rúman mánuð vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta sem haldið verður þar að hluta til í sumar. Fyrstu leikir fara fram í Mexíkóborg 11. júní.Menntamálaráðherrann Mario Delgado greindi frá þessu á X á fimmtudag. Hann sagði að ákvörðunin væri einnig vegna mikilla sumarhita sem nú þegar er farinn að hafa áhrif á skólahald í fleiri ríkjum. Því hafi verið ákveðið að kennslu ljúki 5. júní. Hann sagði að stjórnvöld væru þó að íhuga að byrja næsta skólaár fyrr.Reuters fréttaveitan segir að þessi ákvörðun hafi verið harðlega gagnrýnd af samtökum foreldra og kennarasambandinu. Kennarasambandið segir í yfirlýsingu að það sé óásættanlegt að nota HM í fótbolta sem ástæðu til að stytta skólaárið. Menntun barna eigi ekki að fórna fyrir íþróttaviðburð sem fa